Umsókn um verkfallsbætur

Til að sækja um verkfallsbætur er sótt um á Mínum síðum hjá Kötlusjóðnum. Launaseðill fyrir júlí mánuð þarf að fylgja með umsókn og einnig þarf að muna að haka í rétt stéttarfélag og dagana sem viðkomandi var í verkfalli. Allar upplýsingar varðandi umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofunni nk. mánudag.

Nýr kjarasamningur samþykktur !

Atkvæðagreiðslum um kjarasamning ellefu aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk á hádegi í dag, mánudaginn 19. júní. Mikill meirihluti samþykkti samninginn hjá þeim ellefu aðildarfélögum BSRB sem samningurinn nær til. Hlutfall félagsmanna sem samþykktu samninginn hjá STAVEY var 95,1% og var hlutfallið um og yfir 90% hjá öðrum aðlidarfélögum. Mánaðarlaun hækka samkvæmt samningi um að lágmarki 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Samkomulag náðist einnig um sáttagreiðslu að upphæð 105.000, Read more…

Kynning á nýjum kjarasamningum

Kynning á nýjum kjarasamningi verður haldin í Þekkingarsetri Vestmannaeyja þann 15. júní kl 19:30. Þekkingarsetrið er að Ægisgötu 2 og gengið er inn beint á móti Vigtinni. Kynningin verður í kennslustofum VISKU fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og kynna sér þær úrbætur sem fylgja þessum kjarasamningum.

Kjarasamningur undirritaður

Baráttuþrek félagsfólks BSRB skilaði árangri og kjarasamningur hefur loks verið undirritaður við Samband íslenskra sveitarfélaga. Mánaðarlaun hækka að lágmarki um 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Samkomulag náðist um sáttagreiðslu að upphæð 105.000 kr. eftir að ríkissáttasemjari lagði fram innanhústillögu á fjórða tímanum í nótt. Auk þess var samið um hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024 og nær Read more…

Áhrif verkfallsins eru mikil

Verkfall hefur alltaf keðjuverkandi áhrif út í samfélagið eins og sést á þessari frétt frá Tígli. „Það eru 12 kennarar í verkfalli hjá okkur og hefur verkfallið mikil áhrif á nemendur okkar og þeirra fjölskyldur. Hvað varðar starfsemi skólans hefur verkfallið ekki enn aukið álag á kennara þar sem fjöldi nemenda miðast við hversu margir kennarar eru í vinnu. Eins og staðan er núna þá er ein deild hjá okkur alveg lokuð fyrir hádegi þessa vikuna sem Read more…

person coloring art with crayons