Atkvæðagreiðslum um kjarasamning ellefu aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk á hádegi í dag, mánudaginn 19. júní. Mikill meirihluti samþykkti samninginn hjá þeim ellefu aðildarfélögum BSRB sem samningurinn nær til. Hlutfall félagsmanna sem samþykktu samninginn hjá STAVEY var 95,1% og var hlutfallið um og yfir 90% hjá öðrum aðlidarfélögum.

Mánaðarlaun hækka samkvæmt samningi um að lágmarki 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Samkomulag náðist einnig um sáttagreiðslu að upphæð 105.000, auk þess sem var samið um hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Hægt að lesa nánar með því að smella hér fyrir neðan:

Categories: Tilkynningar