Á hádegi í dag, þriðjudaginn 16. maí hófst atkvæðagreiðsla um enn umfangsmeiri verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu STAVEY og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti.

Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Á mannamáli þýðir það að félagar STAVEY eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa.

Þitt atkvæði skiptir máli !

Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum STAVEY sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land. Vinnustaðirnir sem um ræðir eru Íþróttamiðstöðin, Leikskólinn Kirkjugerði ,Ráðhúsið / bæjarskrifstofur og Áhaldahúsið.

Athugið að allt félagsfólk STAVEY Starfsmannafélags, sem semja við Sambandið hefur atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir.