Úthlutunarreglur

Réttindi í sjóðnum

  • Einungis félagsfólk STAVEY stéttarfélags getur fengið styrk úr sjóðnum og þarf það að hafa greitt félagsgjöld í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum.
  • Félagsfólk þarf að vera í starfi bæði þegar sótt er um styrk og hann notaður.
  • Stjórn sjóðsins er heimilt að taka tillit til uppsafnaðra réttinda hjá öðrum sjóðum innan BSRB félaga og annarra eftir atvikum eða sérstökum samningum milli félaga.
  • Félagsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli getur sótt um styrk vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt félagsgjald í einn mánuð, þó aldrei hærri upphæð en hámarksréttur segir til um.
  • Félagsfólk í atvinnuleit sem greiðir stéttarfélagsgjöld getur nýtt sér áður áunninn rétt.
  • Falli greiðslur í sjóðinn niður vegna veikinda, fæðinga/foreldraorlofs eða launalauss leyfis skal meðhöndla þann tíma eins og um greiðslur hafi verið að ræða svo framarlega sem ráðningarsamband sé virkt, skila þarf inn staðfestingu atvinnurekanda á því.
  • Félagsfólk sem lætur af störfum vegna aldurs eða örorku heldur aðild að sjóðnum í 24 mánuði eftir að greiðslu iðgjalda lýkur.
  • Sá sjóðsfélagi sem verður atvinnulaus og greiðir gjald til félagsins af atvinnuleysisbótum á rétt á styrk miðað við réttarstöðu hans þegar hann varð atvinnulaus.
  • Sjóðsfélagi í fæðingarorlofi getur nýtt sér áunninn rétt ef hann hefur valið að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.

Hvaða nám er styrkt

  • Nám í framhaldsskóla og nám sem eykur almenna starfshæfni til dæmis á sviði tölvutækni, sjálfsstyrkingar og tungumála er styrkhæft óháð starfi, allt að kr. 150.000.
  • Lífsleikninámskeið (tómstundanámskeið) og starfsréttindanáms án beinnar tengingar við starf, allt að kr. 130.000,- á 12 mánaðar tímabili. Fer eftir umfangi náms/námskeiðs ,aldrei er þó greitt meira en sem nemur 80% af námskostnaði.
  • Styrkur vegna ökuréttinda og aukinna ökuréttinda, allt að kr. 100.000,-

Hvað er ekki styrkhæft

  • Uppihald og fæðiskostnaður, ferðir innan borga og sveitarfélaga, bensínkostnaður, launatap og námsgögn.
  • Námskeiðiskostnaður maka, barna, eða annarra nákominna er ekki styrktur.
  • Námskeiðskostnaður sem þá þegar hefur verið styrktur úr öðrum sjóði er ekki styrktur.

Hámarksfjárhæð styrkja

  • Félagsfólk getur að hámarki fengið allt að kr. 150.000,- í styrk á 12 mánaðar tímabili.
  • Félagsfólk sem ekki hefur nýtt rétt síðustu 36 mánuði á rétt á styrk allt að 300.000,- fyrir eitt samfellt nám/námskeið samkvæmt reglum sjóðsins að uppfylltum skilyrðum 2. gr. úthlutunarreglna þessa.

Hvernig er greitt úr sjóðnum

  • Sækja skal um á heimasíðu Stavey undir sjóðir og styrkir
  • Með umsókn þarf að fylgja löglegum reikningi frá skóla, reikningur skal vera á nafni félagsmanns þar sem kemur fram námslýsing nafn og kt. Einnig þarf að fylgja afrit af greiðslu úr heimabanka